Fræðslunefnd
Helstu verkefni:
- Skipuleggja og hafa frumkvæði að námskeiðahaldi og almennri fræðslu fyrir lífeyrissjóði.
- Vinna að gerð og þróun fræðslu- og kynningarefnis um lífeyriskerfið.
- Efla og viðhalda síðunni Lífeyrismál.is í samstarfi við samskiptanefnd.
- Koma Lífeyrisviti á framfæri sem víðast til almennings s.s. til fyrirtækja og stofnana og félagasamtaka.
- Fylgja eftir nýjungum og breytingum sem tengjast lífeyrismálum með fræðslu til starfsfólks lífeyrissjóða, fyrirtækja og/eða almennings.
- Styðja við verkefni annarra fastanefnda LL með fræðslu þar sem við á, til lífeyrissjóða, fyrirtækja og/eða almennings.
Sérstök verkefni 2023-2024:
- Semja fræðslu- og námskeiðsáætlun samtakanna 2023-2024 og setja fram áherslur fyrir árið.
- Fjármálavit. Fylgjast með og eftir atvikum styðja við framgang fjármálalæsisverkefnisins Fjármálavits í grunnskólum.
- Fylgjast með og eftir atvikum styðja við fræðslu ASÍ um lífeyrismál í framhaldsskólum og kanna möguleika á lífeyrisfræðslu í háskólum.
- Vinna að fræðslu fyrir nýbúa s.s. með því að uppfæra Lífeyrisvit á ensku og pólsku.
- Fylgja eftir nýjungum og breytingum sem tengjast lífeyrismálum með fræðslu til starfsfólks lífeyrissjóða og/eða almennings eftir atvikum:
- áhrif hækkandi lífaldurs á lífeyrisréttindi í samstarfi við samskiptanefnd.
- kynna tilgreinda séreign.